Unglingalandsmót UMFÍ í Þorlákshöfn um verslunarmannahelgina

Mynd: UMFÍ
Mynd: UMFÍ

21. Unglingalandsmót UMFÍ sem fram fer um verslunarmannahelgina 2.– 5. ágúst verður að þessu sinni haldið í Þorlákshöfn. Mótshaldarar eru Héraðssambandið Skarphéðinn (HSK) og sveitarfélagið Ölfus auk Ungmennafélags Íslands (UMFÍ). 

Í fréttatilkynningu frá UMFÍ er haft eftir Ómari Bragi Stefánssyni, framkvæmdastjóra Unglingalandsmóts UMFÍ, að meiri fjölbreytni sé á mótinu nú en nokkru sinni fyrr. Það veiti öllum þátttakendum tækifæri til að prófa fullt af spennandi greinum. Á meðal nýjunganna eru greinar sem gera allri fjölskyldunni kleift að taka þátt og keppa saman.

Yfir 20 keppnisgreinar verða í boði í ár. Fastar greinar eins og knattspyrna, körfubolti og frjálsar íþróttir verða á dagskránni en af nýjum greinum nú má nefna keppni í dorgveiði og sandkastalagerð. Keppni í kökuskreytingum er einnig á dagskránni. Þetta verður í annað sinn sem keppt er í kökuskreytingum á Unglingalandsmóti UMFÍ en fyrst var keppt í greininni á Egilsstöðum í fyrra og sló hún í gegn.

„Við sáum það á Egilsstöðum að þátttakendur á Unglingalandsmótum vilja fjölbreytni og nýjungar. Við svörum að sjálfsögðu því kalli,“ segir Ómar Bragi og bætir við að flestar greinarnar séu til þess fallnar að vinir og vinkonur geti búið til lið saman. Allir geta skráð sig til leiks.

Vímulaus fjölskylduhátíð sem hefur slegið í gegn

„Unglingalandsmót UMFÍ er vímulaus fjölskylduhátíð þar sem börn og ungmenni á aldrinum 11–18 ára reyna með sér í fjölmörgum íþróttagreinum en samhliða er boðið upp á fjölbreytta afþreyingu, leiki og skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Búist er við ótrúlegum fjölda barna og ungmenna ásamt fjölskyldum þeirra á mótið. Ekki er skilyrði að vera skráður í ungmenna- eða íþróttafélag til þess að taka þátt á Unglingalandsmóti UMFÍ," segir í tilkynningu frá UMFÍ.

Skráningargjald á landsmótið er 7.000 krónur og geta allir áhugasamir skráð sig til leiks en til að geta gegnið frá skráningu þarf að greiða gjaldið. Ekki er innheimt gjald fyrir aðra mótsgesti en þeir geta nýtt sér þá fjölbreyttu afþreyingu sem boðið er upp á. Dagskrá mótsins er þéttskipuð, keppni á daginn og á kvöldin er boðið upp á skemmtanir þar sem margir þekktir tónlistarmenn koma fram. Meðal þeirra eru Jói Pé og Króli, Herra Hnetusmjör, Flóni og Huginn, Jón Jónsson og hljómsveitin Between Mountains, Young Karin, Míó Tríó, DJ Dóra Júlía og fleiri.

Skráning og greiðsla fer í gegnum greiðsluþjónustukerfið NORA. 

Ítarlegri upplýsingar eru á www.ulm.is 

Tengiliðir mótsins eru: 

Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri Unglingalandsmóts UMFÍ, sími 898 - 1095 og Garðar Geirfinnsson, verkefnastjóri Unglingalandsmóts UMFÍ, sími 846 – 1330.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir