Unglingalandsmóti UMFÍ á Selfossi frestað um ár

Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi og framkvæmdastjóri móta UMFÍ. Mynd:UMFÍ
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi og framkvæmdastjóri móta UMFÍ. Mynd:UMFÍ

Framkvæmdanefnd Unglingalandsmóts UMFÍ hefur ákveðið að fresta Unglingalandsmóti UMFÍ, sem fyrirhugað var að halda á Selfossi nú um verslunarmannahelgina, um ár. Ákvörðunin var tekin í samráði við almannavarnir og sóttvarnarlækni en skipulag mótsins er flókin og ljóst að erfitt yrði að tryggja öryggi gesta á mótinu. 

Unglingalandsmót UMFÍ eru árlegur viðburður og jafnan ein fjölmennasta samkoman sem haldin er hér á landi um verslunarmannahelgina. Að þessu sinni var ætlunin að mótið yrði haldið á Selfossi í samstarfi við Héraðssambandið Skarphéðin og Sveitarfélagið Árborg og var búist við um tíu þúsund mótsgestum eins og á fyrri mótum, þátttakendum á aldrinum 11-18 ára, foreldrum þeirra, systkinum og öðrum.

„Fjöldi fólks hefur lagt mikið á sig og hlakkað til Unglingalandsmóts UMFÍ á Selfossi. En við verðum að sýna ábyrgð og tryggja heilsu og öryggi allra þátttakenda og gesta mótsins. Þess vegna höfum við ákveðið að fresta mótinu um ár,“ segir Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi og framkvæmdastjóri móta UMFÍ, í tilkynningu um frestun mótsins.

Undirbúningur mótsins hefur staðið yfir um langt skeið. Dagskráin var fullkláruð og átti að bjóða upp á um 20 keppnisgreinar alla verslunarmannahelgina og tónleika á kvöldin ásamt fjölda annarra viðburða og afþreyingar. Skráning hefur jafnframt verið í fullum gangi síðan um mánaðamót.

Ómar segir mótshaldara harma þessa niðurstöðu. En ákvörðunin sé vel ígrunduð og með almannahagsmuni í huga.

„Unglingalandsmót UMFÍ er flókinn viðburður þar sem þátttakendur skrá sig í margar ólíkar greinar og fara á milli svæða. Það eykur á flækjustigið og hættunni á að hópsmit komi upp,“ segir hann.

Ómar bendir jafnframt á að skipuleggjendur mótsins hafi unnið vel með sóttvarnarlækni og Almannavörnum að undirbúningi Unglingalandsmóts UMFÍ. Unnið hafi verið að því að fara eftir tilmælum um sóttvarnir. Fyrr í sumar voru væntingar um að hámarksfjöldi á samkomum yrði tvö þúsund manns. Við þær aðstæður sá nefndin fram á að mótshaldið gæti farið fram og uppfyllt öll skilyrði á sama tíma. En þar sem aðstæður hafi breyst og útlit fyrir að takmarkanir verði áfram mun reynast mjög erfitt að uppfylla öll skilyrði sem til staðar eru ásamt því að tryggja að það skipulag sem sett var upp haldi.

„Við viljum ekki taka þá áhættu sem er fólgin í því að halda áfram. Í þessu máli skiptir heildin mestu máli. Við hvetjum fjölskyldur eftir sem áður til að skemmta sér saman á heilbrigðum forsendum og búa til góðar minningar um verslunarmannahelgina 2020. Síðan sjáumst við saman á Unglingalandsmóti UMFÍ á Selfossi 2021,“ segir Ómar Bragi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir