Ungmennavika NSU í Danmörku
Ungmennafélag Íslands er aðili að NSU – Nordisk Samorgnaisations for Ungdomasarbejde en samtökin standa fyrir viðburðum fyrir ungt fólk á Norðurlöndum á hverju ári. Ungmennavika NSU fer að þessu sinni fram í Karpenhøj sem er 50 km frá Aarhus dagana 3.-8. ágúst.
Flogið verður til og frá Billund. UMFÍ á sæti fyrir fimm þátttakendur á aldrinum 18-20 ára að þessu sinni.
„Yfirskrift vikunnar er „Norden redder Jorden Paly 4 the planet“. Fjallað verður um náttúruna okkar, loftslag á norðurlöndum í bland við ævintýri og leiðtogahæfileka ungs fólks á Norðurlöndum. Þátttakendur fá tækifæri til að reyna sig í ýmsum aðstæðum s.s kajak ferð, klifri og sofa úti í náttúrunni,“ segir í fréttatilkynningu.
Þátttökugjaldið er 1500 dk. krónur ásamt ferðakostnaði en UMFÍ niðurgreiðir fyrir sína þátttakendur helming. Umsóknafrestur er til 1. júní nk.
Allar nánari upplýsingar veitir Sabína Steinunn Halldórsdóttir, landsfulltrúi UMFÍ, á netfanginu sabina@umfi.is.