Ungum ökumönnum fer fram

Vert er að hrósa því sem vel er gert og þá má með sanni segja að ungir ökumenn eigi hrós skilið, segir í tilkynningu frá VÍS en samkvæmt tölum Umferðarstofu hefur slysatíðni aldurshópsins 17 – 20 ára, lækkað undanfarin ár og endurspeglar það tölur VÍS að mörgu leiti. -Margt spilar inn í eins og bætt ökukennsla, ökuferilsskrá og punktakerfi, bráðabirgðaskírteini, námsefni í skólum, áróður, sérstök námskeið vegna akstursbanns og fleira, segir í tilkynningunni.

Það sem vegur hins vegar þyngst er að ungir ökumenn meðtaka það sem fyrir þá er lagt og sýna meiri færni en áður. Þó er enn langt í land þar til viðunandi árangur næst.

Ef rýnt er í tölur Rannsóknarnefndar umferðarslysa um banaslys í umferðinni má sjá að flestir sem láta lífið eru í aldurshópnum 15-24ra ára og í þeim hópi eru einnig flestir þeirra sem verða valdir að slíkum slysum.

„Ungt fólk telur sig stundum vera ódauðlegt og mörgum tamur frasinn: Það kemur ekkert fyrir mig. Reynsluleysi verður hins vegar ekki vegið upp með töffara- og glannaskap. Ofurtrú á eigin ökuhæfileikum hefur leikið margan grátt og ákveðinn hópur, að mestu strákar, setur slæman stimpil á allan aldurshópinn með hraðakstri sínum.

Með því að stilla hraðanum í hóf, einbeita sér algjörlega að akstrinum, láta þrýsting frá öðrum ekki hafa áhrif á sig, aka aldrei eftir að hafa neytt áfengis og annarra vímuefna og nota bílbelti þá stíga ungir sem aldnir ökumenn stórt skref í þá átt að fækka slysunum enn frekar,“ segir ennfremur í tilkynningu frá VÍS.

VÍS hefur verið með verkefnið Ég lofa í nær mánuð á heimasíðu félagsins og á facebook síðunni Ég lofa. Yfir 2700 einstaklingar hafa skráð niður loforð sem þeir hafa lofað sér og öðrum að efna með það að markmiði að bæta sig sem þátttakanda í umferðinni.Verkefninu lýkur 17. júní en þátttakendur eru hvattir áfram til að tileinka sér það eða þau loforð sem viðkomandi setti sér.

Fleiri fréttir