Unnið að hreinsun

Vegagerðin hefur beðist velvirðingar á þeim óþægindum sem vetrarblæðingar hafa valdið vegfarendum undanfarið en unnið er að hreinsun á vegum þar sem tjörukögglar hafa dreifst og mun halda því áfram næstu daga haldi þetta ástand áfram.

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er erfiðara að eiga við þá kafla þar sem blæðingarnar eru upprunnar. Tilraun verður gerð með að dreifa steinefni í valda kafla í næstu þýðu til að stemma stigu við frekari blæðingum.

Vetrarblæðingar hafa verið óvenju miklar að undanförnu en mest hefur verið um blæðingar í Húnavatnssýslum vestan við Blönduós en tjörukögglar hafa dreifst víða um vegakerfið á Vestur- og Norðurlandi. Á heimasíðu Vegagerðarinnar kemur fram að ekki er nákvæmlega vitað af hverju þær verða en þar segir að líklega sé um að ræða samspil tíðarfarsins, þess að það skiptist á þýða og frost, og þess að hálkuvarnir, sand- og saltnotkun hefur verið mikil síðustu vikur.

Vatn kemst niður í klæðinguna en ekki lengra þar sem frost er undir, þá geta nagladekk og íblöndunarefni í klæðingunni spilað inn í þetta ferli. Lífolía var notuð á þeim köflum þar sem mestu blæðingarnar eru. Vetrarblæðingar, í mun minna mæli, hafa þekkst síðan 1995, þegar notuð voru önnur íblöndunarefni.

Vegagerðin hvetur ökumenn til þess að gæta varúðar, sérstaklega þegar bílar mætast á þessum svæðum. Mikilvægt að draga úr hraða þegar bílar mætast.

Þá verða sett upp sérstök varúðarskilti vegna tjörublæðinganna og einnig skilti þar sem varað er við steinkasti (tjörukögglum).

Sé um tjón að ræða þarf að fylla út tjónsskýrslu hjá Sjóvá og síðan verður tekin afstaða til bótaskyldu. Ef um verulega óhreina bíla er að ræða má koma með þá á þjónustustöðvar Vegagerðarinnar á Akureyri, Borgarnesi, Sauðárkróki, Búðardal, Ólafsvík eða í Reykjavík, láta skoða bílinn og fá beiðni fyrir þrifum.

Fleiri fréttir