Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum
Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum um styrki til menningarstarfs og atvinnuþróunar og nýsköpunar. Á árinu 2016 verður ein aðalúthlutun með umsóknarfresti til og með 15.febrúar nk.
Umsóknum skal skilað rafrænt á netfangið umsoknir@ssnv.is.Umsóknargögn og nánari upplýsingar má finna á ssnv.is
Þau verkefni hafa forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:
- Verkefni sem falla að markmiðum og áherslum Sóknaráætlunar Norðurlands vestra 2015-2019
- Verkefni sem stuðla að nýsköpun, fjölbreytni og aukinni fagmennsku í menningarstarfi og menningartengdri ferðaþjónustu
- Verkefni sem efla samstarf á sviði menningar og atvinnulífs og fjölga atvinnutækifærum á Norðurlandi vestra.
- Verkefni sem stuðla að nýsköpun og atvinnuþróun og nýtingu auðlinda svæðisins til atvinnusköpunar á Norðurlandi vestra
- Verkefni sem eru til þess fallin að stuðla að fjölbreyttari atvinnutækifærum fyrir konur og ungt fólk á svæðinu.
Vinnustofur/viðtalstímar
Atvinnuráðgjafar SSNV verða með vinnustofur/viðtalstíma á neðangreindum stöðum þar sem boðið verður upp á einstaklingsaðstoð við gerð umsókna, veittar upplýsingar um aðra styrkmöguleika, auk almennrar aðstoðar í tengslum við atvinnu- og menningarstarfsemi.
Við hvetjum umsækjendur og aðra þá sem áhuga hafa eindregið til að nýta sér þessa þjónustu.
Þriðjudagur 26. janúar > Hvammstangi
Kl. 15-18 Skrifstofa SSNV, Höfðabraut 6.
Miðvikudagur 27. janúar > Blönduós
Kl. 15-18 Fundarsalur Blönduósbæjar, Hnjúkabyggð 33.
Fimmtudagur 28. janúar > Skagaströnd
Kl. 15-18 Skrifstofa SSNV, Einbúastíg 2.
Þriðjudagur 2. febrúar > Sauðárkrókur
Kl. 13-18 Kaffi Krókur
Miðvikudagur 3. febrúar > Varmahlíð
Kl. 15-18 Hótel Varmahlíð
Fimmtudagur 4. febrúar > Hofsós
Kl. 15-18 Frændgarður
Nánari upplýsingar og aðstoð veita Ingibergur Guðmundsson, sími 452 2901 – ingibergur@ssnv.is og Sólveig Olga Sigurðardóttir, sími 455-6119 – solveig@ssnv.is
/Fréttatilkynning.