Uppfærð dagskrá Húnvökunnar
Mikið verður til skemmtunar og listauka á Húnavökunni sem hefst fimmtudaginn 19. júlí nk. þétt dagskrá verður allt fram á seinniparts sunnudags. Meðal atriða á föstudag verður „Leitin að týnda ísbirninum“.
Leitin hefst kl. 14:30 við Hafíssetur en hvar hún endar er óvíst en vegleg verðlaun verða í boði. Það er þó vonandi að ísbjörninn sem nú þvælist kringum Vatnsnesið verði fundinn og sendur til fjölskyldu sinnar á Grænlandi.
HÉR er hægt að finna uppfærða dagskrá Húnavökunnar.