Upphaf skráningar í sumarbúðir KFUM og KFUK
Skráning hefst í sumarbúðir KFUM og KFUK laugardaginn 16. mars kl. 12 í húsi KFUM og KFUK Holtavegi 28 og á Akureyri í félagsheimilinu í Sunnuhlíð. Samkvæmt fréttatilkynningu verður boðið upp á 52 dvalarflokka í sumar fyrir börn á öllum aldri í Vatnaskógi, Vindáshlíð, Kaldárseli, Ölveri og Hólavatni.
Hægt er að skrá á staðnum, hringja í síma 588-8899, eða á heimasíðu félagsins www.kfum.is. Í tilefni dagsins verður vorhátíð milli kl. 12 og 15 þar sem ýmislegt skemmtilegt verður í boði fyrir alla aldurshópa og fjölbreytt dagskrá. Má þar nefna hoppukastala, candy floss, andlitsmálun og ýmislegt fleira skemmtilegt. Kaffi og kaffiveitingar verða einnig á boðstólum. „Allir eru boðnir hjartanlega velkomnir,“ segir í fréttatilkynningu.