Upplestur í Heimilisiðnaðarsafninu

Í dag , sunnudaginn 16. desember, verður upplestur í Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi. Upplesturinn hefst kl. 15 og verður boðið uppá heitt súkkulaði, kaffi og smákökur eftir upplesturinn.

Lesið verður úr eftirfarandi bókum:

Skagfirskar skemmtisögur 2 – höfundur Björn Jóhann Björnsson, kynnir og les.
Bjarna – Dísa – eftir Kristínu Steinsdóttur, Kolbrún Zophoníasdóttir, kynnir og les.
Elly – ævisaga Ellyjar Vilhjálms eftir Margréti Blöndal, Kristín Guðjónsdóttir, kynnir og les.

Allir velkomnir – aðgangur ókeypis.

Minnt er á að í litlu safnbúð Heimilisiðnaðarsafnsins má fá sitthvað til jólagjafa s.s. hinar vinsælu laufabrauðsvörur sem eru tilvaldar til jólagjafa innanlands og utan.

Fleiri fréttir