Upplestur í Kaffihúsinu Bjarmanesi

Steinunn P. Hafstað mun lesa upp úr ljóðabók sinni Rósamál í Kaffihúsinu Bjarmanesi á Skagaströnd næst komandi fimmtudag.

Í bókinni eru mögnuð ljóð, rík að lífsvisku og dýpt sem snertir strengi í hjarta lesandans. Steinunn P. Hafstað er fædd í Reykjavík og gaf út fyrstu bók sína fyrir 4 árum, ljóðabókina "Vertu sem lengst". Í ljóðum Steinunnar er sannarlega engin lognmolla, en í þeim felst samt mikill friður, gleði og einlæg sátt.

Fleiri fréttir