Upplestur og aðventustemmning

Upplestur og aðventustemmning verður í Heimilisiðnaðarsafninu og Héraðsbókasafninu dagana 12. og 16. desember. Miðvikudaginn 12. desember kl. 16:30 verður upplestur úr nýjum barnabókum á Héraðsbókasafninu. Meðal annars mun Birgitta Halldórsdóttir lesa upp úr bók sinni Ævintýri tvíburanna á Spáni.

Sunnudaginn 16. desember kl. 15.00 verður upplestur í Heimilisiðnaðarsafninu  úr eftirtöldum bókum:

  • Skagfirskar skemmtisögur 2 – höfundur Björn Jóhann Björnsson, kynnir og les.
  • Bjarna – Dísa – eftir Kristínu Steinsdóttur, Kolbrún Zophoníasdóttir, kynnir og les.
  • Elly – ævisaga Ellyjar Vilhjálms eftir Margréti Blöndal, Kristín Guðjónsdóttir, kynnir og les.

Eftir upplesturinn verður á báðum stöðum boðið uppá heitt súkkulaði, kaffi og smákökur. Allir velkomnir – aðgangur ókeypis.

„Minnum á að í  litlu safnbúð Heimilisiðnaðarsafnsins má fá sitthvað til jólagjafa s.s. hinar vinsælu laufabrauðsvörur sem eru tilvaldar til jólagjafa innanlands og utan,“ segir í fréttatilkynningu.

Fleiri fréttir