Upplestur og aðventustemning í Heimilisiðnaðarsafninu
Í kvöld kl. 20.00 verður sannkölluð aðventustemning í Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi þar sem lesið verður upp úr bókunum: Þessi kona, Í nýjum heimi, Þórdís Spákona og Nokkur lauf að norðan II.
- Þessi kona - höfundur Guðríður B. Helgadóttir, kynnir og les.
- Í nýjum heimi – höfundur Jóhanna Kristín Atladóttir, kynnir og les.
- Þórdís Spákona – höfundar Dagný Marín Sigmarsdóttir, Svava G. Sigurðardóttir og Sigrún Lárusdóttir, Dagný kynnir og les.
- Nokkur lauf að norðan II – Birgitta les smásögu og kynnir útgáfu Töfrakvenna.
Eftir upplesturinn verður boðið upp á súkkulaðidrykk, kaffi og jólasmákökur þar sem höfundar munu árita bækur og hafa til sölu.
Miðvikudaginn 14. desember verðu síðan lesið upp úr nýjum barnabókum.
Í litlu safnbúðinni á Heimilisiðnaðarsafninu er hægt að nálgast hinar vinsælu laufabrauðsvörur s.s. viskastykki, löbera, servíettur, diskamottur og sitthvað fleira sem tilvalið er til jólagjafa til ættingja og vina innanlands og utan. Einnig er Vefnaðarbók Halldóru á tilboðsverði í safninu, sígilt alþýðuþjóðrit.