Upplýsingar um verkefni gærdagsins hjá Húnaþingi vestra vegna úrvinnslusóttkvíar

Upplýsingar um verkefni gærdagsins hjá Húnaþingi vestra vegna úrvinnslusóttkvíar voru birtar á heimasíðu sveitarfélagsins í gær. Þar er einnig minnt á að aðeins einn af hverju heimili hefur heimild til að fara út til að afla nauðsynja og gildir einungis um þá sem ekki voru í sóttkví áður en úrvinnslusóttkví var sett á. 

Á hunathing.is segir að ef einhver á heimilinu sinnir lífsnauðsynlegri þjónustu s.s. heilbrigðisstarfsmaður, starfsmaður KVH eða neyðarþjónustu, ætti það að vera viðkomandi sem aflar nauðsynja á meðan úrvinnslusóttkví stendur.

Helstu verkefni sem unnin voru í gær voru eftirfarandi: 
Forstöðumenn stofnana funduðu í gegnum fjarfund til að fara yfir stöðuna en þeir munu funda daglega meðan á úrvinnslusóttkvínni stendur. 25  sýni voru tekin til að skima smit og fleiri verða tekin í dag og verða niðurstöður nýttar til að taka ákvarðanir um framhaldið, m.a. lengd úrvinnslusóttkvíar.

Hægt er að senda inn spurningar á heimasíðu sveitarfélagsins og þar má einnig finna  spurningar og svör. Stjórnendur stofnana sveitarfélagsins munu hafa eða hafa haft samband við starfsfólk sitt símleiðis eða boða til fjarfundar. Tryggð hefur verið lífsnauðsynleg þjónusta og þjónusta sem þarf að haldast órofin s.s. brunavarnir, veitur o.fl. Samband hefur verið haft símleiðis við skjólstæðinga félagsþjónustunnar og reglulega verður haft samband símleiðis meðan þetta ástand varir. Allar stofnanir sveitarfélagsins eru lokaðar fyrir gestum, s.s. leikskóli, skrifstofa, bókasafn, íþróttamiðstöð o.fl.  Starfsmenn reyna að leysa úr erindum íbúa í síma, tölvupósti eða með fjarfundi. Skipulagning var gerð á heimsendingarþjónustu á mat og nauðsynjum.

Sveitarstjórn fundaði í gær þar sem m.a. var samþykkt  tímabundin heimild til að víkja frá ákvæðum sveitarstjórnarlaga vegna neyðarstigs almannavarna. Aðgerðastjórn á Sauðárkróki fer með stjórnun aðgerða í Húnaþingi vestra og framfylgir vettvangsstjórn almannavarna á Hvammstanga tilskipunum aðgerðastjórar og fundar oft á dag.​

Allar deildir KVH verða opnar í dag, mánudag, á áður auglýstum opnunartímum, með takmörkunum sem sjá má á heimasíðum KVH og sveitarfélagsins. Stefnt er að því að koma á heildstæðum lista yfir fyrirtæki og þjónustu þeirra á heimasíðu sveitarfélagsins.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir