Uppskeruhátíð barna og unglinga hjá Neista

Vetrarstarfi æskulýðsnefndar Neista í Austur-Húnavatnssýslu lauk 4. júní með uppskeruhátíð barna og unglinga sem voru á námskeiðum hjá félaginu í vetur. Uppskeruhátíðin þótti takast vel og var góð mæting hjá börnum og foreldrum. Þennan dag var hávaðarok en þeir krakkar sem höfðu ætlað í útreiðartúr létu það ekki á sig fá og fóru í reiðtúr inni í Reiðhöllinni og skemmtu sér m.a. við að skipta um hesta og ríða berbakt. 

Á vef Neista segir að í haust hafi æskulýðsnefnd ákveðið að efla æskulýðsstarfið þar sem afmælisár var framundan. Leitast var við að fá styrki hjá fyrirtækjum og stofnunum á svæðinu til að styrkja starfið sem gekk vel. Fenginn var reiðkennari, Sonju Noack, sem kom til Blönduóss 3x í viku og kenndi öllum börnum, unglingum og þeim fullorðnu hjá félaginu. Einnig kenndi hún öll bókleg námskeið í knapamerki 1,2,3 og 4 og luku allir bóklegu prófi ásamt því að þeir nemendur sem voru í knapamerki 1, 2, og 4 luku verklegu prófi. Í knapamerki 1 voru 7 börn, í knapamerki 2 voru 8 unglingar en 2 af þeim tóku líka próf í knapamerki 1. Í knapamerki 3 voru 3 en þau taka próf næsta vor og í knapamerki 4 var 1 unglingur sem lauk líka prófi en 4 stigið var kennt í fyrsta skipti hjá félaginu.

 

Í vetur var mikil aukning á námskeið hjá byrjendum en þar þar voru 8 börn á aldrinum 2ja til 5 ára,  en alls voru 21 barn, yngra en 12 ára, á námskeiðum en sum þeirra hafa verið á námskeiðum í mörg ár. Ásamt því að koma 1x í viku á námskeið tóku mörg hver þátt í Grunnskólamóti og Mótaröð Neista þar sem þau stóðu sig með miklum sóma. Boðið var uppá Töltfiminámskeið með Trausta Þór um miðjan janúar þar sem nokkrir unglingar. Eftir knapamerkjapróf hófust svo stífar æfingar hjá öllum hópum fyrir Afmælishátíðina þar sem 50 börn og unglingar tóku þátt í hinum ýmsu atriðum.

Fleiri fréttir