Uppskeruhátíð tónlistardaga kórs Hólaneskirkju í máli og tónum
Uppskeruhátíð tónlistardaga kórs Hólaneskirkju í máli og tónum í Hólaneskirkju á Skagaströnd sunnudaginn 9. mars 2014, kl. 14.00. Um helgina tekur kórinn þátt í raddþjálfunarnámskeiði undir stjórn Aðalheiðar Þorsteinsdóttur organista og Önnu Sigríðar Helgadóttur messó sópran.
Nýja sálmabókin Sálmar 2013 skipar stóran sess á tónlistardögum kórsins. Aðalheiður er ein þeirra sem séð hafa um að útbúa bókina. Hún starfar sem píanóleikari, organisti, útsetjari, kennari og tölvusetur nótnabækur ásamt því að syngja með ýmsum kórum.
Anna Sigga eins og hún er jafnan kölluð syngur með fjöla kóra og tekur þátt í margskonar tólistarflutningi og hefur starfað sem kórstjóri.
Það verður yndislegt að njóta uppskeru helgarinnar hjá kór Hólaneskirkju. Við eigum í vændum tónlistarhátíð með fjölbreyttri tónlist og helgiathöfn. Minningarsjóður um hjónin frá Garði og Vindhæli styrkja verkefnið.
Bregðið ykkur af bæ og komið til kirkju.
Séra Bryndís Valbjarnardóttir.
/Fréttatilkynning