Úrskurðarnefnd um upplýsingarmál úrskurðar Blönduósbæ í óhag
Úrskurðarnefnd um upplýsingarmál hefur úrskurðað að Blönduósbæ beri að afhenda bæjarfulltrúa S-listans, Oddnýju Maríu Gunnarsdóttur, afrit af ráðningarsamningum sveitarfélagsins á grundvelli upplýsingalaga og að henni sé heimilt að taka ráðningarsamningana út af skrifstofu Blönduósbæjar en því hafði áður verið hafnað.
Oddný kærði þá ákvörðun Blönduósbæjar að hún gæti einungis kynnt sér efni og innihald samninganna á skrifstofu Blönduósbæjar en ekki utan skrifstofunnar. Á fundi bæjarráðs í gær lagði Hörður Ríkharðsson, bæjarfulltrúi S-listans, fram bókun þess efnis að sorglegt væri að starfsmenn Blönduósbæjar bæru ekki meira traust til bæjarfulltrúa en svo að þeir yrðu að leggja í kostnaðarsaman málatilbúnað. Lagði Hörður fram nokkrar spurningar sem nauðsynlegt væri að fá skýr svör við.
Sjá nánar um bókun og annað í fundargerð bæjarráðs HÉR
/Húni.is