Úrslitakeppni Stærðfræðikeppni FNV, MTR og 9. bekkjar

Sauðárkrókur. Mynd/Fengin af Facebook-síðu Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.
Sauðárkrókur. Mynd/Fengin af Facebook-síðu Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.

Föstudaginn 15. apríl fer lokakeppni stærðfræðikeppni FNV, MTR og 9. bekkjar fram. Alls taka 17 keppendur þátt að þessu sinni og eins og áður eru vegleg verðlaun í boði. Fjöldi styrktaraðila kemur að keppninni, en henni er ætlað að vekja áhuga ungs fólks á námi í stærðfræði og tæknigreinum.

Keppnin hefst kl. 13:00 og stendur til kl. 15:00. „Á meðan á keppni stendur verður boðið upp á kynnisferð um skólann fyrir alla þá sem hafa áhuga. Við hvetjum alla sem vilja kynna sér kennsluaðstöðu skólans til að mæta á sal Bóknámshúss kl. 13:00,“ segir á fésbókarsíðu FNV. 

Fleiri fréttir