Úrtaka og félagsmót Neista

Félagsmót Neista og úrtaka fyrir Landsmót verður haldið á Blönduóssvelli mánudaginn 13. júní kl. 10.00. Keppt verður í tölti, opnum flokki, A og B flokki gæðinga, flokki polla, barna, unglinga og ungmenna.

Ef ekki er næg þátttaka í einhverri keppnisgrein áskilur mótanefnd sér rétt til að fella niður þá grein. Skráningar á mótið skulu berast á netfangið neisti.net@simnet.is fyrir kl. 21.00 fimmtudagskvöldið 9. júní.

Skráningargjöld verða 2.000 kr. fyrir fyrstu skráningu, 1.500 kr. fyrir aðra skráningu og 1.000 kr. eftir það. Börn og unglingar borga 800 kr. Keppendur eru beðnir að hafa í huga að þar sem dómarar eru ekki allir íþróttadómarar er töltkeppnin ekki lögleg til stigasöfnunar til Landsmóts.

Nánar á neisti.net

Fleiri fréttir