USAH 100 ára - afmælisfagnaður á laugardag
Í tilefni af 100 ára afmæli Ungmennasambands Austur-Húnvetninga verður hátíðardagskrá í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi næstkomandi laugardag, 31. mars, frá klukkan 14 til 16:30. Meðal dagskrárliða má nefna; Myndasýning úr starfi USAH sl. 100 ár, fjöltafl í skák, verðlaunaafhending fyrir myndasamkeppni 3.-6. bekkjar og ljóðasamkeppni 7.-10. bekkjar, sem efnt var til af tilefni afmælisins og margt fleira skemmtilegt.
Húnavökuritin verða þar einnig til sýnis og hin fjölmörgu aðildarfélög USAH verða með kynningu á starfsemi sinni. Allir eru velkomnir að taka þátt í gleðinni og boðið verður upp á afmælisköku.
Nánari upplýsingar um dagskránna er að finna hér: USAH 100 ára.