USAH óskar eftir ábendingum um íþróttafólk

Íþróttasvæðið á Blönduósi. Mynd: blonduos.is
Íþróttasvæðið á Blönduósi. Mynd: blonduos.is

Ungmennasamband Austur-Húnvetninga óskar eftir ábendingum frá íbúum Austur-Húnavatnssýslu um íþróttafólk sem sýnt hefur góðan árangur í sinni keppnisgrein árið 2016 vegna tilnefningar til íþróttamanns ársins hjá USAH.

Tilnefna má þá sem æfa og keppa innan aðildarfélaga USAH ásamt þeim sem eiga lögheimili í sýslunni en æfa með öðrum félögum. Ábendingar skulu berast stjórn USAH fyrir 20. desember næstkomandi. Ábendingum og greinagerð um árangur ársins skal skilað á netfangið usah540@simnet.is

Fleiri fréttir