USAH verður 100 ára

Ungmennasamband Austur Húnavatnssýslu verður 100 ára þann 30. mars 2012 og af því tilefni verður boðið upp á hátíðardagskrá laugardaginn 31. mars 2012, í íþróttahúsinu á Blönduósi.

Fram kemur á vefmiðlinum huni.is að af því tilefni leitar USAH til félagsmanna og allra íbúa sýslunnar hvort þeir lumi á góðum ljósmyndum úr starfi ungmennafélagsins fyrr og síðar og/eða hugmyndum sem koma má í framkvæmd í tilefni þessara merku tímamóta.

Hægt er að hafa samband við framkvæmdastjóra USAH á netfangið eysteinnp@simnet.is.

Fleiri fréttir