Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á Blönduósi

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um gildi laga nr. 13/2011 um „ICESAVE“ sem fram á að fara laugardaginn 9. apríl 2011 er hafin hjá sýslumanninum á Blönduósi, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi.  Opið er alla virka daga frá kl. 09:00 – 15:00 eða eftir nánara samkomulagi.  Á kjördag verður opið milli kl. 16:00 – 18:00.

Eftirtaldir hafa verið skipaðir til að gegna starfi hreppsstjóra vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu:

Húnaþing vestra: Helena Halldórsdóttir, Grundartúni 14, Hvammstanga, skv. samkomulagi / s-893-9328
Sveitarfélaginu Skagaströnd: Lárus Ægir Guðmundsson, Einbúastíg 2, Skagaströnd, skv. samkomulagi / s-864-7444.
Ósk um atkvæðagreiðslu í heimahúsi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar skal hafa borist sýslumanni eigi síðar en kl. 16:00, fjórum dögum fyrir kjördag.

Kjósendum er bent á upplýsingar um kosningarnar á kosningavef innanríkisráðuneytisins á slóðinni: http://www.kosning.is.
Það skal tekið sérstaklega fram að hægt er að kjósa utan kjörfundar hjá öllum sýslumannaembættum landsins.

Fleiri fréttir