Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hafin á Skagaströnd
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave samkomulagið þann 9 apríl hefur hafist á Skagaströnd. Hægt er að greiða atkvæði daglega milli kl. 10-16, eða eftir samkomulagi, hjá hreppstjóra Lárusi Ægi Guðmundssyni að Einbúastíg 2, 1. hæð til vinstri.
Á heimasíðu Skagastrandar eru góðar leiðbeiningar um hvernig kosning fer fram utan kjörfundar.
„Kjósandi þarf að gera kjörstjóra grein fyrir sér með því að framvísa kennivottorði eða nafnskírteini, eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjóra. Kennivottorð er persónuskilríki með mynd, svo sem vegabréf eða ökuskírteini.
Að þessu loknu fær kjósandi afhent kjörgögn.
Skal kjósandi svo aðstoðarlaust og án þess að nokkur annar sjái rita atkvæði sitt á kjörseðilinn og setja atkvæðið í kjörseðilsumslagið.
Kjósandinn merkir við á kjörseðli hvort hann samþykki að lög nr. 13/2011 haldi gildi sínu eða að þau eigi að falla úr gildi. Ef kjörseðill ónýtist hjá kjósanda má hann fá annan í stað hins.
Þá áritar og undirritar kjósandi fylgibréfið í viðurvist kjörstjóra sem vottar atkvæðagreiðsluna.
Að lokum skal kjörseðilsumslagið ásamt fylgibréfinu lagt í sendiumslagið og því lokað vandlega. Umslagið skal síðan áritað til sýslumannsins, kjörstjórnarinnar eða hreppstjórans í því umdæmi þar sem kjósandinn telur sig standa á kjörskrá. Á sendiumslagið skal rita nafn kjósanda, kennitölu og lögheimili.
Kjósanda er heimilt að greiða atkvæði utan kjörfundar oftar en einu sinni og skal þá aðeins hið síðastgreidda atkvæði tekið til greina. Utankjörfundaratkvæði telst greitt þann dag sem fylgibréfið er dagsett.
Kjörskrá liggur fyrir á skrifstofu Skagastrandar.