Útibú Barnahúss opnað á Akureyri í gær
Í gær, mánudaginn 1. apríl, var Barnahús opnað með formlegum hætti á Akureyri en Barnahús hefur verið starfrækt í Reykjavík frá árinu 1998 með það að markmiði að hagsmunir barns séu tryggðir þegar upp kemur grunur um kynferðisbrot. Í frétt á vef stjórnarráðsins segir að hugmyndin bak við Barnahús sé að sérfræðingarnir komi til barnsins en ekki öfugt og verið sé að taka þá hugmynd skrefinu lengra í útibúinu á Norðurlandi.
Í tilefni af tuttugu ára afmæli Barnahúss í fyrra fékk Barnaverndarstofa gjöf frá félags- og barnamálaráðherra, dómsmálaráðherra og lögreglunni á Norðurlandi eystra svo hægt væri að koma á fót útibúi fyrir Barnahús á Norðurlandi. Frá þeim tíma hefur verið unnið hörðum höndum að því að undirbúa opnun þess og var það gert með formlegum hætti á Akureyri í gær. Við það tilefni sagði Ásmundur Einar Daðason, félags og barnamálaráðherra að merkilegt væri að ekki hefið tekið lengri tíma að koma húsinu á fót og sýndi það hvað hægt væri að gera ef allir tækju höndum saman.
Í húsinu, sem er hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi, er aðstaða fyrir bæði dómstóla og barnaverndarnefndir til að kanna grun um ofbeldi gegn börnum. Í útibúinu verða tekin rannsóknarviðtöl við börn og boðið upp á áfallameðferð. Hingað til hafa þeir sem annast meðferð ferðast um landið en nú er komin aðstaða til að veita börnum á Norðurlandi hana á staðnum. Það býður upp á að hægt sé að hafa ýmsan æskilegan búnað við höndina, sem ekki er hægt þegar starfsfólk er á ferð og flugi, og ætti það að leiða til betri þjónustu. Vonir standa til að sambærileg útibú geti starfað í öllum landsfjórðungum.
Barnahús hefur fyrir löngu sannað gildi sitt og hefur samskonar starfsemi breiðst út um Evrópu en þar er nú að finna um sextíu barnahús að íslenskri fyrirmynd. Frásögn barns er oft eina sönnunargagnið í málum þar sem kynferðisbrot gegn barni er til rannsóknar. Sömuleiðis í málum sem varða líkamlegt ofbeldi. Þess vegna skiptir öllu máli að barn treysti sér til að segja frá því ofbeldi sem það hefur orðið fyrir og er sú vinna sem unnin er í Barnahúsi mikilvægur líður í því.
Ásmundur Einar sagði við opnunina að um mikilvægan áfangasigur væri að ræða. „Börn eiga að hafa jafnan rétt á þjónustu óháð búsetu og er það ekki síst mikilvægt í jafn viðkvæmum málum og hér um ræðir. Jafn réttur allra barna til sömu þjónustu er ein helsta áskorunin sem við stöndum frammi fyrir við endurskoðun á félagslegri umgjörð og þjónustu við börn sem fer fram í félagsmálaráðuneytinu um þessar mundir. Opnun Barnahúss á Norðurlandi er sannarlega jákvætt skref í þá átt að bæta þjónustu við börn.“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.