Útlit fyrir afbragðsgóðan ís á Svínavatni
Hið árlega Ísmót á Svínavatni verður haldið laugardaginn 5. mars. „Ísinn er afbragðs góður og vel lítur út með veður og færi,“ eins og segir í fréttatilkynningu frá undirbúningsnefnd.
Vegleg peningaverðlaun verð fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki en ráslistar og aðrar upplýsingar verða birtar á heimasíðu mótsins þegar nær dregur.
Óskað er eftir að skráningar berist á netfangið thytur1@gmail.com í síðasta lagi þriðjudaginn 1. mars. Ekki verður tekið við skráningum eftir þann tíma.