Útskrift og opið hús hjá Farskólanum
Í dag, þriðjudaginn 28. maí, útskrifar Farskólinn nemendur af námskeiðinu ,,Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum" við hátíðlega athöfn í Farskólanum við Faxatorg. Að útskrift lokinn eða klukkan 19:00 verður opið hús í Farskólanum. Starfsmenn munu kynna þjónustu og ráðgjöf Farskólans næsta skólaár ásamt námskeiðum sem fyrirhugað er að koma á fót. Léttar veitingar verða í boði og allir velkomnir, segir í fréttatilkynningu á vef Farskólans.