Útskriftarnemandi númar 2000 fékk 2000 krónur
Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 32. sinn laugardaginn 21. maí. 72 nemendur brautskráðust frá skólanum, þar með talinn 2000, nemandinn sem hlaut að launum 2000 krónur.
Sagt er frá útskriftinni á heimasíðu FNV:
"Skólameistari setti athöfnina og greindi m.a. frá fjölda nemenda og starfsmanna. Í vetur hafa 478 nemendur stundað nám við skólann. Á haustönn voru þeir 413 og 384 á þessari önn. Starfsmenn voru 59 á haustönn og eru 58 á þessari önn. Þá rakti hann nýtt námsframboð skólans, en næsta vetur verður boðið upp á nám í bifvélavirkjun og húsgagnasmíði. Loks ávarpaði hann nemendur og lagði þeim lífsreglurnar um gildi þess að vera virkur þjóðfélagsþegn.
Þessu næst flutti Þorkell V. Þorsteinsson aðstoðarskólameistari vetrarannál þar sem stiklað var á stóru í viðfangsefnum skólans á síðasta skólaári. Þar bar hæst endurnýjun og nýbyggingu verknámshúss skólans sem tekið var í notkun á haustönn, en þar er um að ræða stækkun um 600 fm. Þá kom fram að skólameistari Jón F. Hjartarson lætur af störfum næsta haust eftir 32 í stöðu skólameistara, en hann hefur verið við stjórnvölinn frá stofnun skólans haustið 1999. Guðbjörg Einarsdóttir færði Jóni gjöf frá starfsfólki skólans og þakkaði honum fyrir samstarfið.
Að annál loknum flutti Dagrún Ísabella Leifsdóttir lagið Dagný við undirleik Thomasar Higgerson
Því næst flutti skólameistari ávarp, brautskráði i nemendur og veitti viðurkenningar. Að lokinni brautskráningu söng Dagrún lögin O mio babbion caro og Við gengum tvö við undirleik Thomasar Higgerson.
Aðalheiður Jonna Friðfinnsdóttir flutti ávarp nýstúdenta, Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir flutti ávarp 10 ára stúdenta, Anna Steinunn Friðriksdóttir flutti ávarp 20 ára stúdenta og Jónína Gunnarsdóttir flutti ávarp 25 ára stúdenta. Þá ávarpaði séra Gísli Gunnarsson, formaður skólanefndar, samkomuna og þakkaði skólameistara vel unnin störf. Þess má geta að hluti ávarps Sigurlaug Vordísar var í formi söngs við undirleik Sigfúss Benediktssonar.
Að loknum ávörpum söng Dagrún lagið Summertime við undirleik Thomasar Higgerson
Í kveðjuorðum skólameistari þakkaði hann samstarfsfólki sínu og skólanefnd fyrir samstarfið á liðnum árum og þakkaði að lokum nemendum og foreldrum þeirra fyrir að velja FNV.
Að loknum kveðjuorðum skólameistara var skólanum slitið.
Að þessu sinni brautskráðust 72 nemendur, þar af 38 stúdentar, fjórir iðnmeistarar, 15 húsasmiðir, þrír rafvirkjar, sjö vélvirkjar og fimm vélstjórar með vélstjórnarréttindi A. Þess má geta að þrír stúdentar brautskrást að auki af iðnbrautum og einn sem iðnmeistari. Þá brautskráðust einn iðnmeistari og einn vélvirki með vélstjórnarréttindi A að auki.
Við brautskráninguna fengu eftirtaldir nemendur viðurkenningar:
Andri Páll Guðmundsson hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í ensku á stúdentsprófi málabrautar
Anna Karítas Ingvarsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í sérgreinum málabrautar á stúdentsprófi. Hún hlaut einnig viðurkenningu frá Sendiráði Kanada fyrir framúrskarandi námsárangur í ensku og frönsku á stúdentsprófi málabrautar Ennfremur hlýtur hún viðurkenningu frá danska sendiráðinu fyrir framúrskarandi námsárangur í dönsku á stúdentsprófi málabrautar. Og að lokum hlaut hún viðurkenningu frá Þýska sendiráðinu fyrir framúrskarandi námsárangur í þýsku á stúdentsprófi
Erla Björt Björnsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi alhliða námsárangur á stúdentsprófi náttúrufræðibrautar. Hún fékk einnig viðurkenningu frá Háskólanum í Reykjavík fyrir framúrskarandi námsárangur í raungreinum á stúdentsprófi náttúrufræðibrautar. Ennfremur fékk hún viðurkenningu frá Efnafræðifélagi Íslands fyrir framúrskarandi námsárangur í efnafræði á stúdentsprófi náttúrufræðibrautar. Loks fékk hún viðurkenningu frá Þýska sendiráðinu fyrir framúrskarandi námsárangur í þýsku á stúdentsprófi.
Gísli Már Arnarson hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í sérgreinum iðnbrautar rafvirkjunar
Halldór Örn Kristjánsson hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í sérgreinum viðskipta- og hagfræðibrautar á stúdentsprófi . Hann hlaut einnig viðurkenningu frá Lionsklúbbi Sauðárkróks úr Minningarsjóði Tómasar Hallgrímssonar fyrir framúrskarandi námsárangur í sérgreinum viðskipta- og hagfræðibrautar á stúdentsprófi.
Hildur Sólmundsdóttir hlaut viðurkenningu frá danska sendiráðinu fyrir framúrskarandi námsárangur í dönsku á stúdentsprófi málabrautar.
Jónatan Björnsson hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í sérgreinum námsbrautar í vélvirkjun.
Ólafur Daði Jónsson hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í stærðfræði á stúdentsprófi náttúrufræðibrautar - eðlisfræðistígs.
Regína Petra Tryggvadóttir hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í sérgreinum félagsfræðabrautar á stúdentsprófi.
Sylvía Rún Rúnarsdóttir fékk viðurkenningu frá Þýska sendiráðinu fyrir framúrskarandi námsárangur í þýsku á stúdentsprófi.
Stefán Ingi Gestsson hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í sérgreinum húsasmíða.
Steingrímur Óskarsson hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í sérgreinum húsasmíða. Steingrímur var jafnframt útskriftanemi númar 2000.