Úttektum vegna jarðræktar í Húnaþingi lokið

Búið er að ganga frá úttektum vegna jarðræktarstyrkja á búnaðarsambandssvæði Húnaþings og Stranda. Styrkir verða væntanlega greiddir út til bænda í vikunni fyrir jól.

Það stefnir í að umfang jarðræktar á landvísu hafi verið heldur minna nú í ár en árið 2009 en á  búnaðarsambandssvæði Húnaþings og Stranda var þó aukning um 3% á milli ára, fór úr 992 hekturum á síðasta ári í 1.023 hektara á þessu ári.

Á öllu svæðinu var umfang kornræktar nánast það sama og árið 2009  þó er um 20 ha minna í korni Í A-Hún en á móti kemur að kornræktin eykst í V-Hún. Heildar grasrækt minnkar mikið á svæðinu á milli ára og munar þar mest um 25% minni grasrækt í A-Hún. Heildar grænfóðurrækt á svæðinu er aftur á móti mun meiri eða alls 496 ha. Sjá töflu HÉR.

/rhs.is

Fleiri fréttir