Væta framundan
Það hefur kólnað aðeins á Norðurlandinu frá því sem verið hefur en í morgun var allt hvítt yfir að líta þó bjartsýnustu menn hafi verið farnir að taka út garðhúsgögnin til að njóta góða veðursins sem hefur verið undanfarið. Veðurstofan gerir þó ráð fyrir að hlýni aftur en það á að verða vætusamt á Norðurlandi vestra.
Spá Veðurstofu Íslands: Norðaustan 8-13 m/s og bjartviðri, en lægir smám saman í dag. Frost 0 til 5 stig. Suðvestan 5-10 á morgun, skýjað með köflum og hlýnar heldur í veðri.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Suðvestan 5-10 m/s. Skýjað og sums staðar dálítil rigning eða þokusúld en bjartviðri um landið austanvert. Heldur hlýnandi veður, hiti 1 til 7 stig síðdegis.
Á miðvikudag:
Vestlæg átt 5-10 m/s og rigning eða súld með köflum, en þurrt og víða bjart austanlands. Hiti 2 til 8 stig.
Á fimmtudag:
Fremur hæg suðvestlæg átt og dálítil rigning en úrkomulítið suðaustan- og austanlands. Hiti breytist lítið.
Á föstudag, laugardag og sunnudag:
Suðvestlæg eða vestlæg átt og rigning með köflum. Áfram fremur milt í veðri.