Val á manni ársins í Austur-Húnavatnssýslu

Húnahornið stendur fyrir vali á Manni ársins í Austur-Húnavatnssýslu. Mynd: Skjáskot af vef Húnahornsins.
Húnahornið stendur fyrir vali á Manni ársins í Austur-Húnavatnssýslu. Mynd: Skjáskot af vef Húnahornsins.

Líkt og undanfarin ellefu ár ætlar Húnahornið að bjóða lesendum sínum að velja mann ársins í Austur-Húnavatnssýslu. Vefurinn biðlar til lesenda að senda inn tilnefningu í gegnum þar til gerðan rafrænan atkvæðaseðil.

Hver og einn getur aðeins sent inn eina tilnefningu og er jafnframt óskað eftir að gerð sé grein fyrir ástæðu tilnefningarinnar. Maður ársins í Austur-Húnavatnssýslu getur verið einn einstaklingur eða hópur manna.

Lesendur Húnahornsins völdu Róbert Daníel Jónsson, forstöðumann í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi, sem mann ársins í Austur-Húnavatnssýslu árið 2015. Róbert Daníel er iðinn við að taka myndir af húnvetnskri náttúru og húnvetnsku mannlífi og deila þeim á veraldarvefinn. Myndirnar hans hafa vakið athygli margra á fegurð svæðisins og áhugaverðum stöðum í sýslunni.

Valið stendur til miðnættis 20. janúar næstkomandi og verða úrslit kynnt á Þorrablóti Vökukvenna á Blönduósi, laugardaginn 21. janúar. Allir lesendur Húnahornsins eru hvattir til að taka þátt í valinu með því að smella hér.

Menn ársins í Austur-Húnavatnssýslu síðustu ár eru þessir:

2015: Róbert Daníel Jónsson
2014: Brynhildur Erla Jakobsdóttir
2013: Elín Ósk Gísladóttir
2012: Kári Kárason og Pétur Arnar Kárason
2011: Einar Óli Fossdal
2010: Bóthildur Halldórsdóttir.
2009: Bóthildur Halldórsdóttir.
2008: Lárus Ægir Guðmundsson.
2007: Rúnar Þór Njálsson.
2006: Lárus B. Jónsson.
2005: Lárus B. Jónsson.

 

Fleiri fréttir