Val á manni ársins í Austur-Húnavatnssýslu
Húnahornið býður lesendum sínum að velja mann ársins í Austur-Húnavatnssýslu líkt og gert hefur verið undanfarin 14 ár. Eru lesendur hvattir til að senda inn tilnefningu í gegnum þar til gerðan rafrænan atkvæðaseðil.
Hver og einn getur sent inn eina tilnefningu og er jafnframt óskað eftir ástæðu tilnefningarinnar. Maður ársins í Austur-Húnavatnssýslu getur verið einn einstaklingur eða hópur manna. Hægt er að senda inn tilnefningar með því að smella hér.
Lesendur Húnahornsins völdu Guðjón Ragnarsson á Blönduósi sem mann ársins í Austur-Húnavatnssýslu árið 2018, ásamt hundinum Tinna. Guðjón og Tinni gerðu fjölskyldu við Heiðarbraut á Blönduósi viðvart þegar eldur kom upp í hjólhýsi þeirra snemma morguns sumarið 2018. Má kallast mildi að ekki fór verr en rúður sprungu í húsinu vegna hita frá eldinum og þá logaði um stund í þakskeggi bílskúrs hússins.
Valið stendur til miðnættis 26. janúar næstkomandi og verða úrslit kynnt á þorrablóti á Blönduósi, laugardaginn 1. febrúar.
Menn ársins í Austur-Húnavatnssýslu síðustu ár eru þessir:
2018: Guðjón Ragnarsson og hundurinn Tinni
2017: Eyþór Franzon Wechner
2016: Skarphéðinn Húnfjörð Einarsson
2015: Róbert Daníel Jónsson
2014: Brynhildur Erla Jakobsdóttir
2013: Elín Ósk Gísladóttir
2012: Kári Kárason og Pétur Arnar Kárason
2011: Einar Óli Fossdal
2010: Bóthildur Halldórsdóttir.
2009: Bóthildur Halldórsdóttir.
2008: Lárus Ægir Guðmundsson.
2007: Rúnar Þór Njálsson.
2006: Lárus B. Jónsson.
2005: Lárus B. Jónsson.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.