Valdimar sigurvegari í fjórgangi

Óhætt er að segja að deildin fari vel af stað þetta árið því í gærkvöld var boðið uppá sterka fjórgangskeppni þar sem margar mjög góðar sýningar sáust. Umgjörð var öll hin besta og áhorfendafjöldi með mesta móti. Tónninn var strax sleginn með fyrsta hesti, þar sem Hanna Rún Ingibergsdóttir og Nótt frá Sörlatungu áttu frábæra sýningu. Nótt er mjög athyglisverður fjórgangari og reiðmennska Hönnu Rúnar til fyrirmyndar.

Valdimar Bergstað var fjórði í rásröð og var sýningar hans beðið með eftirvæntingu þar sem um frumraun hans var um að ræða með Hugleik frá Galtanesi. Valdimar mætti svellkaldur með frábæra sýningu og uppskar einkunn uppá 7,43.

Bjarni Jónasson með Roða frá Garði og Þórarinn Eymundsson með Takt frá Varmalæk brugðust ekki frekar en fyrri daginn og fóru þeir beint í A-úrslit með einkunnir yfir 7.

Það mátti heyra saumnál detta þegar Lilja Pálmadóttir kom í salinn með Móa frá Hjaltastöðum. Lilja virtist einbeitt og góð sýning skilaði þeim 7,03 í einkunn og urðu þau efst inní B-úrslit.

B-úrslitin voru skemmtileg á að horfa þar sem Anna Kristín á Glað frá Grund og Lilja Pálmadóttir með Móa virtust nokkuð jafnar en það fór svo að Lilja sigraði B-úrslitin með einkunn uppá 7,33.
Athygli vakti Moladóttirin Lipurtá frá Hóli fyrir óhemju mikinn fótaburð en knapi á henni var Baldvin Ari.

Þegar þarna var komið var ljóst að A-úrslitin yrðu mjög spennandi sem raunin varð.
Frábærar sýningar þar sem reiðmennska og góðir hestar heilluðu áhorfendur. Dómarar voru vel með á nótunum og einkunnir uppá 9,0 sáust.

Þegar á úrslitin leið var ljóst að keppnin yrði á milli Valdimars og Lilju, en þau Mói virtust vaxa við hverja raun. Að keppni lokinni voru áhorfendur ekki vissir um hver hefði unnið en þó fór það svo að Valdimar og Hugleikur höfðu sigur með einkunn uppá 7,87.

Var það mál manna að þetta hafi verið ein besta fjórgangskeppni sem sést hefur í Svaðastaðahöllinni og fóru áhorfendur ánægðir heim. Það var lið Hrímnis sem hreppti liðsverðlaunin þetta kvöld. Næsta mót verður haldið miðvikudaginn 25.febrúar þar sem keppt verður í fimmgangi.

 

Fleiri fréttir