Varað við grjóthruni á Siglufjarðarvegi

Vegagerðin varar vegfarendur við grjóthruni á Siglufjarðarvegi frá Ketilási til Siglufjarðar. Vegfarendur eru einnig varaðir við miklum skemmdum á klæðningu (slitlagi) á veginum um Þverárfjall. Vegir á Norðurlandi eru að mestu greiðfærir en hálkublettir eru þó sumstaðar á útvegum.

Á Ströndum og Norðurlandi vestra er sunnan 8-13 og rigning, vestlægari og skúrir síðdegis. Hiti 5 til 8 stig, en kólnandi í kvöld. Veðurstofan spáir suðvestan 10-15 og él á morgun. Hiti 0 til 5 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á miðvikudag:
Suðvestanátt, víða 13-18 m/s og él, en þurrt og bjart A-lands. Hiti 0 til 5 stig.

Á fimmtudag:
Hæg breytileg átt og skýjað með köflum. Frost 0 til 5 stig, en víða frostlaust á S-verðu landinu. Sunnan 5-10 og slydda eða rigning V-lands um kvöldið.

Á föstudag:
Vestlæg átt og milt veður. Rigning eða slydda, þó síst A-lands. Úrkomuminna og kólnandi um kvöldið.

Á laugardag:
Vestlæg átt og stöku él. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost fyrir norðan.

Á sunnudag og mánudag:
Norðlæg átt og snjókoma eða él, einkum N- og A-til. Kólnandi veður.

Fleiri fréttir