Varað við holum í vegum

Holóttur vegur. Mynd af vef Vegagerðarinnar.
Holóttur vegur. Mynd af vef Vegagerðarinnar.

Vegagerðin vekur athygli á því að nú er sá tími ársins samhliða tíðarfari sem eykur hættuna á holumyndunum á þjóðvegum. Í frétt á vef Vegagerðarinnar segir að þegar þíða komi í kjölfar frosts og kulda eða þegar miklir umhleypingar séu aukist hættan á því að holur myndist í bundnu slitlagi, malbiki og klæðingu. Því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka árvekni og aka ætíð eftir aðstæðum.

Ennfremur segir: „Það getur tekið skamman tíma fyrir holu að myndast, jafnvel djúpa holu sem getur leitt til tjóns. Starfsmenn þjónustustöðvanna fylgjast með eins og kostur er og bregðast við ábendingum um holur. Vegagerðin leitast við að bregðast við með viðgerð sem allra fyrst.“

Vegagerðin beinir þeim tilmælum til vegfarenda að senda megi ábendingar um holur á netfangið vegagerdin@vegagerdin.is og í síma 1777. Lendi vegfarandi í tjóni er rétt að fylla út tjónstilkynningu en hana má finna á vef Vegagerðarinnar.

Vegfarendur eru hvattir til að sýna árvekni og vera vakandi fyrir því í umferðinni að holur geta myndast mjög hratt þannig að þótt ekið sé á vegi sem var í góðu lagi í gær getur verið komin hola í hann í morgunsárið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir