Varað við hrossum á vegum
Lögreglan í Húnavatnssýslum og Skagafirði hefur fengið margar tilkynningar um laus hross á vegum upp á síðkastið og er brýnt fyrir vegfarendum að sýna aðgát. Þar sem mikill snjór hefur verið hér norðanlands hafa girðingar víða fennt í kaf sem auðveldar skepnunum að sleppa. Sýna þarf sérstaka aðgát í svartasta skammdeginu en hættulegt getur verið að keyra á þessar stóru skepnur.
Samkvæmt lögreglunni á Blönduósi var ein ákeyrsla í Húnavatnssýslum, þ.e. á Skagastrandarvegi sl. fimmtudag, og drapst hrossið. Undanfarið hefur lögreglan þurft að bregðast við fjölmörgum tilkynningum vegna lausra hrossa á vegum en tilkynningunum hefur verið að fækka þar sem bændur hafa verið ná hrossunum heim.
Lögreglunni í Skagafirði hefur einnig borist margar tilkynningar um hross á vegum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni hafa bændur hafa verið að gera það sem þeir geta við að halda hrossunum innan girðingar en þó hefur það komið fyrir að eitt og eitt sleppi út.
Keyrt var á tvö hross sem sluppu utan girðingar í Blönduhlíðinni sl. laugardag og drápust bæði hrossin. Um var að ræða tvo topp reiðhesta frá Hjaltastöðum en annar þeirra hafði keppt á þremur Landsmótum og því mikil eftirsjá af þeim gæðingi.