Varað við sauðfé á vegum
Mbl.is sagði frá því í morgun að allar helstu leiðir á landinu eru greiðfærar en varað er við sauðfé á vegum í Fljótum í Skagafirði. Þungatakmarkanir eru á fáeinum vegum og akstur er bannaður á flestum hálendisleiðum.
Vegna vinnu við brúargólf Borgarfjarðarbrúar er umferð þar stýrt með ljósum. Búast má við töfum ef umferð er mikil.
Á Þverárfjalli er vegurinn mjög ósléttur og hraði því tekinn niður í 70 km/klst. Ásþungi er takmarkaður við tíu tonn. Mbl.is