Varað við skemmdum á slitlagi á Þverárfjalli
Vegagerðin varar vegfarendur við skemmdum á klæðingu (slitlagi) á Þverárfjalli. Vegir eru að mestu auðir um allt land en óveður er á Holtavörðuheiði og yst á Siglufjarðarvegi. Þungatakmarkanir eru annars í flestum landshlutum en nánari upplýsingar má fá í síma 1777 eða á vef Vegagerðarinnar.
Á Ströndum og Norðurlandi vestra er suðvestan 10-18 m/s og skúrir eða él. Snýst í minnkandi norðanátt í kvöld. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost í nótt. Veðurstofan spáir suðaustan 3-8 og slyddu eða snjókomu seint á morgun.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á fimmtudag:
Hæg breytileg átt og skýjað með köflum. Frost 0 til 5 stig fyrir norðan og austan, annars 0 til 5 stiga hiti. Sunnan 5-10 m/s og rigning eða slydda á SV- og V-landi um kvöldið.
Á föstudag:
Vestlæg átt, víða 8-13 m/s. Rigning, einkum V-til á landinu og milt veður. Skúrir síðdegis en él N-lands.
Á laugardag:
Vestanátt og bjart veður A-til, en smáskúrir eða él á V-verðu landinu. Frost 0 til 5 stig, en 0 til 5 stiga hiti S- og V-lands.
Á sunnudag:
Norðaustanátt og snjókoma fyrir norðan, en suðlæg átt með smávætu og mildu veðri syðra.
Á mánudag og þriðjudag:
Norðaustlæg átt, snjókoma eða él og kalt í veðri.