Varað við skriðuföllum og ofanflóðum á Siglufjarðarleið

Svona lítur veðurspáin út fyrir Norðurland vestra og Strandir kl. 10. SKJÁSKOT AF VEÐUR.IS
Svona lítur veðurspáin út fyrir Norðurland vestra og Strandir kl. 10. SKJÁSKOT AF VEÐUR.IS

Það er enn rok og rigning í boði á Norðurlandi vestra en spár Veðurstofunnar gera ráð fyrir því að heldur dragi úr vætu og vindi þegar líður á daginn. Eitthvað örlítið hafa hitatölur þokast upp á við og því fellur úrkoman að mestu sem rigning en ekki snjór. Þó veðrið sé heldur að ganga niður gera spár ráð fyrir norðanátt og kulda svo langt sem spáin nær en þó er líklegt að við fáum svolitla sólargeisla á föstudaginn.

Nú upp úr klukkan átta í morgun var krap á Öxnadalsheiði og á Þverárfjalli og var unnið að því að riðja vegina. Hálkublettir eru á Siglufjarðarvegi úr Fljótum og til Siglufjarðar og þar er varað við mögulegum ofanflóðum á veginn vegna mikillar úrkomu og er möguleiki á skriðum og krapaflóðum. Vegfarendur eru beðnir um að fara um með gát.

Aðrir vegir á Norðurlandi vestra virðast greiðfærir en varað er við þoku í Hrútafirði. Eins og staðan er núna eru gular veðurviðvaranir víða um land en detta nú út hver af annarri þegar líður á daginn og má reikna með að sú gula detti út hér á Norðurlandi vestra kl. 18 í dag.

Fleiri fréttir