Varað við stórfelldu eldi á frjóum laxi af norskum uppruna í sjókvíum

Nýlega var haldinn fundur forustumanna veiðifélaga í Húnaþingi. Þar var samþykkt ályktun þar sem varað er alvarlega við stórauknum áformum um sjókvíaeldi á laxi á Vestfjörðum og í Eyjafirði. Sérstaklega er lagst gegn því að eldi á norskum eldislaxi í sjókvíum verði leyft í Ísafjarðardjúpi.

Á fundinum kom fram að eldi þar sé komið alveg að gönguslóð húnvetnskra laxa og geti ógnað stórum laxveiðiám. Eldislax af framandi stofnum sem sleppi úr sjókvíum geti valdið óafturkræfum umhverfisspjöllum og spillt líffræðilegum og efnahagslegum verðmætum.

Vakin er athygli á því að nú er hafin þriðja tilraun á uppbyggingu sjókvíaeldis hér á landi. Þær fyrri hafi endað miklu fjárhagslegu tapi og benda megi á nýlegar aðvaranir eyfirskra sjómanna um drasl sem þar flýtur um allan sjó.

Fundurinn bendir einnig á að þó það sé alvarlegt og mikill skaði fyrir umhverfið og geti valdið hættu séu þau áhrif þó smámunir miðað við ef íslenski laxfiskastofninn sé eyðilagður.

Ályktun þessi var kynnt landbúnaðarráðherra á fundi á Blönduósi þann 21. apríl sl. og hann hvattur til þess að beita sér fyrir hagsmunum þeirra sem vilja vernda lífríkið og viðhalda hinum eftirsótta vilta laxastofni í Íslenskum ám.

Fleiri fréttir