Varað við stormi á aðfangadag

Vonandi eru flestir komnir þangað sem þeir ætla að eyða aðfangadagskvöldi því samkvæmt veðurstofunni verður aldeilis ekki ferðaverður í dag. Jafnframt er mikil hálka á vegum samkvæmt heimasíðu vegagerðarinnar.

Varað er við stormi víða um land og hér norðvestanlands snýst í norðvestan 18-23 m/s með snjókomu, mun hægari og úrkomulítið í kvöld. Kólnandi veður. Vaxandi suðvestanátt og él á morgun, 10-15 síðdegis. Frost 1 til 8 stig.

 

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á mánudag (annar í jólum):
Vestan og suðvestan 8-15 m/s og él, en þurrt á NA- og A-landi. Frost 1 til 12 stig, kaldast fyrir norðan.

Á þriðjudag og miðvikudag:
Vestan 5-10 m/s og víða bjartviðri, en dálítil él V-lands. Frost 0 til 12 stig, kaldast í innsveitum.

Á fimmtudag:
Vestlæg eða breytileg átt og víða él. Frost um allt land.

Á föstudag:
Útlit fyrir suðaustanátt með úrkomu og hlýnandi veðri.

Fleiri fréttir