Varað við stormi á Norðurlandi vestra
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
08.06.2015
kl. 18.10
Spáð er stormi um norðvestanvert landið og nær vindur hámarki í kvöld, samkvæmt ábendingu frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar. „Hún er heldur snarpari SV-vindröstin sem er á leið austur yfir land í kvöld og nótt,“ segir á vefsíðu Vegagerðarinnar.
Á vefnum segir ennfremur að reikna megi með hörðum hnútum í Skagafirði, á milli Varmahlíðar og Sauðárkróks sem og í Fljótum og á Siglufjarðarvegi, allt að 30-40 m/s. Einnig snörpum strengjum þvert á veg norður frá Akureyri og út með Eyjafirði að vestanverðu.
Lægir smámsaman í nótt.