Varað við stormi í kvöld

Veðurstofan varar við stormi (meira en 20 m/s) norðantil í kvöld. Suðlæg átt 10-15 m/s og úrkomulítið er nú á Norðurlandi vestra, en hægari um hádegi. Suðaustan 8-13 og él síðdegis, en suðvestan 15-23 í kvöld. Suðvestan 10-15 í nótt og á morgun og dregur úr éljum. Hiti kringum frostmark.

Hálka eða hálkublettir er á vegum en snjóþekja og snjókoma á Vatnsskarði. Siglufjarðarvegur er að mestu greiðfær en vegfarendur eru beðnir að gæta ýtrustu varúðar vegna óvenju mikils jarðsig á veginum.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:

Sunnan 8-13 m/s og él, en bjartviðri á N- og A-landi. Frost 0 til 7 stig. Hvessir síðdegis, suðaustan 18-23 og slydda eða rigning um kvöldið, en snjókoma NA-til. Hlýnandi veður.

Á miðvikudag:

Suðvestan 13-20 m/s. Slydda eða rigning og síðar él, en þurrt að mestu NA-til á landinu. Hiti 0 til 5 stig, en frystir allvíða um kvöldið.

Á fimmtudag:

Suðvestan 13-18 m/s og él, en léttskýjað NA- og A-lands. Frost 0 til 5 stig.

Á föstudag:

Suðvestan 8-13 m/s og él S- og V-lands, en heldur hægari vindur annars staðar og léttskýjað. Frost 1 til 10 stig, mest í innsveitum fyrir norðan og austan.

Á laugardag:

Norðvestan og vestan 3-8 m/s og stöku él, en úrkomulaust á SA-landi og Austfjörðum. Talsvert frost.

Á sunnudag:

Líkur á vaxandi suðaustanátt með úrkomu og hlýnandi veðri.

Fleiri fréttir