Varað við tölvuþrjótum

Ríkislögreglustjóri telur ástæðu til þess að vara við tölvuþrjótum sem undanfarna daga hafa hringt í fólk á Íslandi undir því yfirskyni að þeir starfi hjá tölvufyrirtækinu Microsoft.

Í fréttatilkynningu frá Ríkislögreglustjóra kemur fram að fólki hefur verið sagt að það hafi uppgötvast tölvuvírus í tölvu viðkomandi og boðin er fram aðstoð til þess að lagfæra vandann í gegnum síma.

„Fólk er beðið um að sýna varkárni og ekki undir neinum kringumstæðum að láta glepjast af slíkum tilboðum,“ segir loks í tilkynningunni.

 

Fleiri fréttir