Varasamir tölvupóstar frá Blönduósbæ
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
13.11.2019
kl. 13.30
Tölvuhakkari hefur komist inn á tölvupóst starfamanns á skrifstofu Blönduósbæjar og hefur sent út pósta sem lítur út eins og um sé að ræða reikning frá Blönduósbæ.
Á heimasíðu sveitarfélagsins kemur fram að verið sé að vinna í að stoppa sendingarnar og er þeim tilmælum beint til allra að opna ekki tölvupósta sem berast og virðast innihalda pdf reikning eða eru grunsamlegir í útliti.
Fleiri fréttir
-
Kvikmyndin Sinners í Króksbíói í kvöld kl. 20:00
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Mannlíf 05.05.2025 kl. 12.37 siggag@nyprent.isSINNERS verður sýnd í kvöld, mánudaginn 5. maí kl. 20:00. Þeir sem vilja panta miða á myndina er bent á að senda skilaboð á Facebook-síðu Króksbíós eða hringja í síma 855-5216 tveimur tímum fyrir sýningu. Myndin er bönnuð börnum yngri en 16 ára. Myndin fjallar um tvíburabræður í leit að betra lífi sem snúa aftur í gamla heimabæinn. Þar býður þeirra meiri illska en þeir hafa áður kynnst.Meira -
Vegið ómaklega að lögreglunni | Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Aðsendar greinar, Vestur-Húnavatnssýsla 05.05.2025 kl. 09.16 gunnhildur@feykir.isFullyrðingar Kristins Hrafnssonar hjá Wikileaks um að auðmenn ráði öllu sem þeir vilji á Íslandi og að lögreglan hér á landi þjóni þeim standast enga skoðun. Nægir í því sambandi að benda á þann fjölda auðmanna sem rannsakaðir hafa verið af lögreglunni, sóttir til saka og sakfelldir frá bankahruninu haustið 2008. Enn eru slík mál í gangi í dómskerfinu meira en 16 árum síðar og verið árum saman. Vægast sagt ómaklega er vegið að lögreglunni í þessum efnum.Meira -
Vísnakeppni Sæluviku 2025
Við setningu Sæluviku Skagfirðinga er venja að birta úrslit í árlegri vísnasamkeppni, vonandi verður hún á Sæluvikudagskránni næstu hálfa öldina amk. Markmiðið er að fá fólk til að rifja upp kynni við skáldagyðjuna, botna fyrirfram gefna fyrriparta og yrkja vísu eða vísur um ákveðið efni. Í ár er það eftirtektarverður og ógnvekjandi stjórnunarstíll forseta nokkurs vestanhafs sem er yrkisefnið. Aukning þátttöku í prósentum talið er að nálgast efri tollamörk Trömps. Bárust okkur svör frá 21 hagyrðingi undir alls 26 dulnefnum. Sumir botnuðu alla fyrriparta ásamt því að senda inn eina eða fleiri vísur, einhverjir sendu aðeins eina stöku og allt þar á milli. Hver hafði sína hentisemi með það. Úr nógu var því að moða og erfitt verk beið dómnefndar.Meira -
Þriðja eins marks tap Stólastúlkna í röð
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 04.05.2025 kl. 12.52 oli@feykir.isEftir sigur í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna hefur lið Tindastóls nú tapað þremur leikjum í röð en allir hafa leikirnir tapast með eins marks mun og liðið verið vel inni í þeim öllum. Í gær heimsóttu Stólastúlkur gott lið Þróttar sem hafði lúskrað á okkar liði í Lengjubikarnum 9-0. Eftir hálfrar mínútu leik í gær var staðan orðin 1-0 og margir óttuðust skell. Fleiri urðu mörkin hins vegar ekki og 1-0 sigur Þróttar niðurstaðan.Meira -
Erfið byrjun Húnvetninga í 2. deildinni
feykir.is Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 04.05.2025 kl. 12.34 oli@feykir.isVið skulum vona að fall sé fararheill hjá knattspyrnuliði Húnvetninga því ekki sóttu þeir gull í greipar Austfirðinga í gær. Þá öttu þeir kappi við lið KFA í Fjarðabyggðahöllinni í fyrstu umferð 2. deildar karla í knattspyrnu. Þegar upp var staðið höfðu gestgjafarnir hreinlega alls ekkert verið gestrisnir, gerðu átta mörk á meðan gestirnir gerðu eitt.Meira
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.