Varmahlíðarskóli lætur Grunnskólabikarinn ekki af hendi
Lokamót Grunnskólamóts hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra var haldið sl. föstudagskvöld í reiðhöllinni Svaðastaðir. Þátttaka var góð og margir góðir ungir knapar og hestar þeirra sem öttu kappi. Keppt er um stóran og myndarlegan farandbikar sem gefinn var af sparisjóðunum í Skagafirði, Siglufirði og Hvammstanga árið 2009 þegar fyrstu mótin voru haldin og er það Varmahlíðarskóli sem fær að geyma hann áfram.
Grunnskólamótið er stigakeppni þar sem keppendur vinna stig fyrir skólann sinn og stigahæsti skólinn fær farandbikarinn til varðveislu fram að næsta lokamóti. Enn sem komið er hefur Varmahlíðarskóli alltaf haft sigur en Húnavallaskóli og Grunnskóli Húnaþings vestra hafa verið í baráttusætum. Í ár fóru leikar þannig að Varmahlíðarskóli fór heim með bikarinn fimmta árið í röð eftir góða keppni, en einungis munað 18 stigum. Skráningar voru sjötíu talsins.
Lokastaða skólanna:
- 1 Varmahlíðarskóli 78
- 2 Húnavallaskóli 60
- 3 Grunnskóli Húnaþings vestra 54
- 4 Blönduskóli 39
- 5 Árskóli 17
- 6 Grunnskóli Austan 13
Stigahæstu knapar þetta árið eru í:
4. – 7. bekk, Lilja Maria Suska Húnavallaskóla
8. – 10. bekk, Ásdís Ósk Elvarsdóttir Varmahlíðarskóla
Í Fegurðarreið kepptu:
Einar Pétursson Húnavallaskóla
Inga Rós Suska Húnavallaskóla
Þórgunnur Þórarinsdóttir Árskóla
Úrslit í Tvígangi:
- 1 Stefanía Sigfúsdóttir Árskóla 7,1stig
- 2 Lilja Maria Suska Húnavallaskóla 6,5 stig
- 3 Lara Margrét Jónsdóttir Húnavallaskóla 6,25 stig
- 4 Hólmar Björn Birgisson Grunnskólinn Austan vatna 6,0 stig
- 5 Jón Hjálmar Ingimarsson Varmahlíðarskóla 5,6 stig
Úrslit í Þrígangi:
- 1 Júlia Kristín Pálsdóttir Varmahlíðarskóla 7,17 stig
- 2 Karitas Aradóttir Grunnskóla Húnaþings vestra 6,58 stig
- 3 Edda Felicia Agnarsdóttir Grunnskóla Húnaþings vestra 6,25 stig
- 4 Guðmar Freyr Magnússon Árskóla 6,25 stig
- 5 Stormur Jón Kormákur Grunnskólinn Austan vatna 6,08 stig
- 6 Ásdís Freyja Grímsdóttir Húnavallaskóla 6,08 stig
Úrslit í Fjórgangi:
A – úrslit:
- 1 Þórdís Inga Pálsdóttir Varmahlíðarskóla 6,5 stig
- 2 Ragna Vigdís Vésteinsdóttir Varmahlíðarskóla 6,45 stig
- 3 Ásdís Ósk Elvarsdóttir Varmahlíðarskóla 6,4 stig
- 4 Hjördís Jónsdóttir Húnavallaskóla 6,25 stig
- 5 Sigurður Bjarni Aadnegard Blönduskóla 6,05 stig
B- úrslit
- Ragna Vigdís færðist upp í A-úrslit með 6,3 stig
- 6 Viktoría Eik Elvarsdóttir Varmahlíðarskóla 6,0 stig
- 7 Anna Herdís Sigurbjartsdóttir Grunnskóla Húnaþings vestra 5,9 stig
- 8 Eva Dögg Pálsdóttir Grunnskóla Húnaþings vestra 5,9 stig
- 9 Ásdís Brynja Jónsdóttir Húnavallaskóla 5,6 stig
Skeið
- 1. Ásdís Ósk Elvarsdóttir 6,0
- 2. Sigurður Bjarni Aadnegard 6,35
- 3. Viktor Jóhannes Kristófersson 7,19
- 4. Magnea Rut Gunnarsdóttir 8,35
- 5. Hjördís Jónsdóttir 8,35