Varúð til hægri!

Orrahríðin er hafin í kosningabaráttunni og vefmiðlarnir notaðir sem aldrei fyrr en það þykir nýlunda að vefmyndavélar séu notaðar í pólitískum tilgangi. Feykir rakst á vefmyndavél í Búðardal og sá skemmtilegt skilti sem segir að varúð til hægri sé góð regla. Feykir hefur ekki heimildir fyrir því hvort hér sé um stórpólitískan áróður að ræða en alla vega er hér skemmtilegt og saklaust grín á ferðinni.

Vefmyndavél er staðsett á húsi KM-Þjónustunnar og Rafsel í Búðardal en einhverjir gárungar hafa sett skilti á pall aftanívagns er lagt hafði verið á planið fyrir utan húsið og beindist vélin að því og allri heimsbyggðinni sjáanlegt. Á sunnudagsmorgninum var hægt að sjá að á skiltinu stóð: Varúð til hægri er góð regla.

Ekki hafa allir tekið gríninu með léttúð því búið var að sverta yfir skiltið á skjánum svo textinn sást ekki en með örlítilli tilfæringu á skiltinu kom það undan „svarta kassanum“ og sýnilegt á ný. Þegar Feykir náði skjámynd af því fyrr í dag var aftanívagninn farinn en skiltið komið á annan pall með sínum tvíræðu skilaboðum og svarti kassinn búinn að missa tilgang sinn.

HÉR er hægt að sjá hluta af Búðardal í vefmyndavélinni góðu.

Fleiri fréttir