Vatnavextir í Vatnsdal

Í Vatnsdal í morgun. Mynd:Höskuldur B. Erlingsson
Í Vatnsdal í morgun. Mynd:Höskuldur B. Erlingsson

Húni.is segir frá því að Vatnsdalur standi svo sannarlega undir nafni í dag. Þar flæðir Vatnsdalsá yfir bakka sína svo um munar enda hefur verið hlýtt í veðri og leysingar miklar en hitinn mun hafa farið í 16 stig í gær og var sólbráð mikil. Höskuldur B. Erlingsson á Blönduósi skoðaði aðstæður í dalnum í morgun og tók nokkrar myndir með flygildinu sínu. Að sögn Höskuldar flæðir vatn yfir tún og engi í neðri hluta dalsins og yfir veginn norðan við Hvamm á u.þ.b. 50 m kafla. Einnig er vegurinn í sundur niður að Undirfellsrétt.

Veðurspá Veðurstofunnar gerir ráð fyrir áframhaldandi suðlægum áttum með mildu veðri næstu daga. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að nýjustu spár geri ráð fyrir kólanandi veðri á páskunum en að enn sé langt í það og hafa beri í huga að vika sé langur tími í veðurspám.

Fleiri myndir úr Vatnsdalnum má sjá á Facebook síðu Höskuldar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir