Vatnsdæla á refli

Menningarverkefnið Vatnsdæla á refli verður kynnt þriðjudaginn 11. janúar kl. 13.30 í Sölvhól, Tónlistardeild LHÍ, Sölvhólsgötu 13. Við það tækifæri opinberar Kristín Ragna Gunnarsdóttir teikningar af einum kafla úr Vatnsdælasögu sem verða útfærðar í útsaumaðan myndrefil með þátttöku nemenda í hönnunardeild LHÍ og almennings.

Verkefnið Vatnsdæla á refli er hugarfóstur Jóhönnu E. Pálmadóttur, bónda og handavinnukennara á Akri í Austur-Húnavatnssýslu og er unnið í samstarfi við Listaháskóla Íslands, Ístex, Textílsetur Íslands og félagið Landnám Ingimundar gamla. Vatnsdæla er myndræn saga af ástum, átökum og erjum, ættarsaga Hofverja í Vatnsdal og gerist á 9.- til 11. öld.

Verkefnið Vatnsdæla á refli á fyrirmynd í Bayeux-reflinum sem saumaður var á 11.öld.  Markmiðið er að endurvekja forna sögu með frumlegum og nýstárlegum hætti í samstarfi við unga hönnuði samtímans.  Hæð og lengd afmarkast af vinnu hönnuða og fræðimanna. Samhliða því eru fornri útsaumsgerð, refilsaumnum, gerð skil.

Kristín Ragna Gunnarsdóttir, teiknari og hönnuður,  hefur umsjón með hönnun myndefnis sem útfært verður nánar af nemendum á 2. ári í grafískri hönnun við LHÍ. Næsta sumar hefst vinna við að sauma út í sjálfan refilinn. Þá gefst almenningi, jafnt heimafólki, ferðamönnum og öðrum gestum, kostur á að marka spor í menningarsöguna með því að koma í Kvennaskólanum á Blönduósi og taka þátt í útsaumnum.

Verkefnið er styrkt af Menningarráði - og Vaxtarsamningi Norðurlands Vestra.

Fleiri fréttir