Vatnsdælingar vilja GSM samband
Íbúar, landeigendur og sumarhúsaeigendur í framhluta Vatnsdals sendu á dögunum áskorun til Símans hf um að hefjast þegar í stað handa við að koma á GSM símasambandi á svæðinu. 1. september s.l. var NMT símakerfið endanlega lagt niður og þar með varð hluti dalsins símasambandslaus hvað varðar farsímana.
Íbúar á svæðinu telja það mikið öryggisatriði að GSM símasamband sé fyrir hendi þar sem þarna er nokkuð langt á milli bæja og enginn möguleiki lengur að hringja eftir aðstoð ef fólk þarf á hjálp að halda úti á milli bæja, þarna eru fjölmargir sumarbústaðir sem hafa ekkert símasamband, á sumrin er heilmikill umferð veiðifólks og ferðamanna og síðast en ekki síst eru í dalnum rekin fyrirtæki, ferðaþjónustufyrirtæki og önnur, sem þurfa að geta verið í góðu símasambandi hvar sem er og hvenær sem er.
Sendir fyrir NMT símakerfið var á tengihúsi við Saurbæ og telja íbúar að sennilega þyrfti bara að koma þar upp nýjum sendi til að ágætis GSM símasamband væri á svæðinu.
Undir þessa áskorun, sem send var forstjóra og stjórnarformanni Símans hf ásamt formanni Fjarskiptasjóðs, rituðu nöfn sín 37 íbúar, húseigendur og landeigendur í framanverðum Vatnsdal.
/SMG