Vaxandi norðaustanátt í dag

Á Norðurlandi er víða hált og sumsstaðar éljar. Snjóþekja er á Vatnsskarði, Þverárfjalli og í Langadal. Vaxandi norðaustanátt á Norðurlandi vestra um hádegi, og él. Norðaustan 13-20 m/s og slydduél eða skúrir síðdegis og á morgun. Hiti um og yfir frostmarki en 2 til 5 stig um tíma í dag.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á laugardag:
Norðaustan og austan 13-20 m/s. Úrkomulítið á SV- og V-landi, annars snjókoma eða slydda, en rigning með SA-ströndinni. Hiti 0 til 5 stig, mildast syðst.

Á sunnudag:
Norðaustan 13-20 m/s, hvassast á Vestfjörðum. Yfirleitt þurrt á S-verðu landinu, annars snjókoma, en slydda austast. Hiti kringum frostmark.

Á mánudag:
Norðan og norðaustan 10-15 m/s NV-til, annars hægari vindur. Snjókoma eða él á N-verðu landinu, en bjart á köflum S-til en þykknar upp með rigningu SA-lands um kvöldið. Hiti nálægt frostmarki.

Á þriðjudag:
Norðanátt V-til en hvöss sunnanátt A-til. SA-lægari síðdegis. Skúrir eða él með S- og A-ströndinni og él á Vestfjörðum annars úrkomulítið. Frost 0 til 6 stig, mest inn til landsins.

Á miðvikudag:
Útlit fyrir austlæga átt og lítilsháttar skúri eða slydduél með austurströndinni annars yfirleitt bjartviðri og vægt frost.

Á fimmtudag:
Líkur á vaxandi norðaustanátt með snjókomu eða slyddu austantil og él á Vestfjörðum annars úrkomulítið. Frostlaust með ströndinni annars vægt frost.

Fleiri fréttir